|
|
|
|
|
|
||||
![]() |
![]() |
|
|
|
|
|||
![]() |
![]() |
![]() |
|
|||||
|
|
|
|
|
|
||||
|
|
|
|||||||
|
|
|
|
|
|
||||
|
|
|
|
|
|
||||
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
(heimild
|
Edgar VaréseEdgar Varése (1883-1965) var fæddur í Frakklandi
en eyddi meirihluta æfinnar í Bandaríkjunum. Þrátt
fyrir að heildarlengd allrar þeirrar tónlistar sem hann
skildi eftir sig sé ekki meiri en um þrjár klukkustundir
þykir Varése með stærri áhrifavöldum
í tónlistarsögu 20. aldar, einkum hvað varðar
raftónlist. Density 21.5 var samið 1936 fyrir flautuleikarann
Georges Barrere og frumraun hans á flautu úr platínu.
Uppbygging verksins er um margt merkileg og hefur verið marg-analíseruð.
Hún byggir á tveimur einföldum stefum sem ganga gegnum
verkið allt, annað er modal og hitt atónal. Density 21.5
er eina einleiksverk Varése en aðferðir hans í notkun
mismunandi blæbrigða og tónhæðabreytinga skapa
einstaklega heildstæða pólýfóníska
uppbyggingu. Density 21.5 er, að mati flautuleikarans sem hér
blæs, besta einleiksverk sem skrifað hefur verið fyrir hljóðfærið.
(MÓ) |