Umsóknir
Við tökum á móti umsóknum í tónleikaröðina „Tónsnillingar
morgundagsins“ Við tökum einnig á móti ábendingum um flytjendur!
Almenn viðmið um umsækjendur
Umsækjendur hafi lokið fyrstu háskólagráðu,
séu að vinna að næstu, eða búnir í
námi og farnir að hasla sér völl, en að jafnaði
sé þó ekki lengra en 5 ár frá því
að námi lauk. Aðaláhersla er á sígilda
tónlist, en öll góð tónlist kemur til greina!
Með umsókn
• Almennt lífshlaup (CV) með upplýsingum um menntun,
verðlaun, námskeið og annað er máli skiptir.
• Tóndæmi, diskur eða myndband.
• Hugmynd að efniskrá, ein eða fleiri, einleikstónleikar
eða kammertónleikar.
Umsókn sendist á krik@islandia.is
eða til:
Tónsnillingar morgundagsins
Guðrúnargötu 10, 105 Reykjavík
Með von um góð viðbrögð!
Til baka á aðalsíðu
|