|
|
|
|
|
|
||||
![]() |
![]() |
|
|
|
|
|||
![]() |
![]() |
![]() |
|
|||||
|
|
|
|
|
|
||||
|
|
|
|||||||
|
|
|
|
|
|
||||
|
|
|
|
|
|
||||
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Sæunn Þorsteinsdóttir fæddist í Reykjavík árið 1984.
Hún byrjaði 5 ára gömul að læra á selló hjá Hauki Hannessyni við
Tónlistarskóla Íslenska Suzukisambandsins. Er hún var 7 ára fluttist hún
til Bandaríkjanna þar sem hún hefur búið að mestu síðan. Sæunn
útskrifaðist frá Cleveland Institute of Music árið 2006 með BM gráðu og
hlaut þar verðlaun sem framúrskarandi nemandi bæði í sellóleik og
kammertónlist. Þá lá leiðin til Juilliard skólans í New York þar
sem aðal kennari hennar var Joel Krosnick og lauk hún Meistara gráðu
þaðan árið 2008. Aðrir helstu kennarar hennar hafa verið Tanya
Lesinsky Carey og Richard Aaron. Hún hefur einnig leikið á fjölda
meistarnámskeiðum, m.a. hjá Steven Isserlis, Anner Bylsma og Zara
Nelsova og var skiptinemi árið 2004 í Konservatoríinu í París (CNSM)
hjá Michel Strauss. Sæunn hefur hlotið ýmis verðlaun fyrir leik sinn m.a.
verðlaun til minningar um Zara Nelsova í Naumburg International
Violoncello Competition í New York City og Janigro Family og Romanini
Foundation verðlaunin í Antonio Janigro International Violoncello
Competition í Zagreb, Króatíu. Hún hefur komið fram víða í
Bandaríkjunum og Evrópu bæði sem einleikari og kammermúsikant og tekið
þátt í fjölda tónlistarhátíða, unnið og komið fram með fjölda frábærra
listamanna. Má þar nefna m.a. Marlboro Music Festival með Mitsuko
Uchida og Kim Kashkashian, Perlman Chamber Music Workshop í
strengjakvartett með Itzhak Perlman. Einnig má nefna Kronberg Cello
Festival þar sem hún var ein af einleikurum á lokatónleikum
hátíðarinnar. Síðast var hún hér á landi í júní og lék þá m.a. einleik
með Kammersveitinni Ísafold í frumflutningi verksins “Bow to String”
eftir Daníel Bjarnason á tónistarhátíðinni Við Djúpið.
Um þessar mundir býr Sæunn í New York og er félagi í
"The Academy" í Carnegie Hall, þar sem hún kemur fram reglulega sem
meðlimur Ensemble ACJW, sem "ensemble in residence" í Skidmore College
í Saratoga Springs, New York og kynnir tónlist, kennir, og spilar fyrir
nemendur í Public School 28 í Brooklyn og öðrum grunnskólum New York
borgar. Meðal annarra verkefna næsta tónleikaárs má nefna frumraun
Sæunnar með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Sellókonsert eftir
Dvorak, tónleikar í Trinity Church á Manhattan, sem verður útvarpað
beint á netinu og Konsert fyrir fiðlu og selló eftir Brahms ásamt
Adriane Tilanus í Amsterdam. Fleiri upplýsingar má finna á vefsíðu
Sæunnar:www.saeunn.com |