|
|
 |
Kristinn Örn Kristinsson
píanóleikari
lauk lokaprófi við Tónlistarskólann á
Akureyri og stundaði eftir það nám við Tónlistarskólann
í Reykjavík, Southern Illinois University og St. Louis Conservatory
of Music í Bandaríkjunum. Meðal helstu kennara hans
má nefna Philip Jenkins, Margréti Eiríksdóttur,
Ruth Slenczynska og Joseph Kalichstein.
Eftir
að námi lauk kenndi Kristinn við Tónlistarskólann
á Akureyri til 1990 en þá gerðist hann skólastjóri
og kennari við Tónlistarskóla Íslenska Suzukisambandsins
í Reykjavík.
Árið 1998 stofnaði hann ásamt fleirum Allegro
Suzukitónlistarskólann í Reykjavík og
hefur starfað þar síðan.
Kristinn Örn var einnig um árabil meðleikari við Tónlistarskólann
í Reykjavík, þar sem hann lék iðulega
með útskriftarnemum. Hann starfaði sem skólastjóri
við Tónskóla
Þjóðkirkjunnar frá 2002-2006 en frá
hausti 2006 var hann ráðinn í fullt starf sem meðleikari
við Söngskólann
í Reykjavík.
Kristinn Örn hlaut starfslaun listamanna 1996, gaf út hljómdiskinn
Píanólögin okkar ári síðar og bókina
Suzuki tónlistaruppeldi 1998. Hann hefur komið víða
fram á tónleikum með ýmsum hljóðfæraleikurum
og söngvurum, leikið inn á hljómdiska og tekið
upp fyrir útvarp.
Til
baka á aðalsíðu
|
|