Á bak við tónleikaröðina Tónsnillingar morgundagsins stendur
Félag til stuðnings ungu tónlistarfólki. Tilgangur félagsins er að skapa ungu tónlistarfólki aukin tækifæri til listsköpunar og að kynna þann mannauð er í því býr.

Að félaginu standa hjónin Kristinn Örn Kristinsson og Lilja Hjaltadóttir, Margrét Guðjónsdóttir og Davíð Magnússon, Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Jón Stefánsson.

Kristinn Örn sér um listræna stjórn en Margrét um fjáröflun og markaðsmál.

Kristinn Örn Kristinsson píanóleikari hefur í gegnum tíðina unnið mikið með ungu fólki, bæði sem kennari og meðleikari. Hann hefur iðulega leikið með útskriftarnemum við áfangalok þeirra, og er nú meðleikari við Söngskólann í Reykjavík auk þess að kenna við Allegro Suzukitónlistarskólann.

Margrét er þjóðfræðingur að mennt, en hefur auk þess stundað tónlistarnám og einnig nám í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst. Hún hefur verið virk í öflugu starfi Tónlistarfélags Borgarfjarðar og staðið á bak við Is-nord hátíðina.

Þau Lilja Hjaltadóttir fiðluleikari, Ólöf Kolbrún Harðardóttir óperusöngvari og Jón Stefánsson kórstjóri og kantor hafa öll stundað öflugt uppeldistarf í tónlistinni - árangur þess sér víða stað í listalífi þjóðarinnar. Davíð er bóndi, þúsundþjalasmiður og áhugamaður um menningarmál.


Til baka á aðalsíðu