Helga Þóra Björgvinsdóttir

fæddist árið 1984. Hún stundaði nám við Tónmenntaskóla Reykjavíkur hjá Gígju Jóhannsdóttur og síðar við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Guðnýju Guðmundsdóttur og Auði Hafsteinsdóttur. Vorið 2004 útskrifaðist hún með Bachelor-gráðu frá Listaháskóla Íslands þar sem aðalkennari hennar var Guðný Guðmundsdóttir.

Haustið 2004 hóf Helga Þóra nám við Listaháskólann í Berlín (Universität der Künste Berlin) hjá Isabelle Faust og lærði kammertónlist hjá Artemis kvartettinum. Í júlí 2007 þreytti Helga Þóra Diplom-próf og hlaut hæstu einkunn.

Helga Þóra hefur m.a. leikið í Sinfóníuhljómsveit Íslands, Orkester Norden og er fulltrúi Íslands í Orchestre de la Cité Internationale Universitaire de Paris. Einnig hefur Helga Þóra verið meðlimur í Kammersveitinni Ísafold frá upphafi.

Sem einleikari hefur Helga Þóra leikið Brahms konsertinn með Sinfóníuhljómsveit Íslands og í apríl 2007 lék hún báðar Bartók rhapsódíurnar með Sinfóníuhljómsveit Unga fólksins. Helga Þóra hefur sótt námskeið til Ítalíu, Frakklands og Þýskalands og hefur numið fiðluleik hjá m.a. Stephen Clapp, Almitu Vamos og Laurent Korcia.

Frá hausti 2007 hefur Helga Þóra verið búsett í París og stundar þar nám við Conservatoire Supérieur de Paris – CNR hjá Luc Héry. Hún sækir einnig fiðlutíma hjá Laurent Korcia

Til baka á aðalsíðu