Gunnhildur Daðadóttir

Fimm ára gömul hóf Gunnhildur Daðadóttir fiðlunám við Tónlistarskóla íslenska Suzukisambandsins hjá Sigríði Helgu Þorsteinsdóttur og Lilju Hjaltadóttur. Hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands vorið 2006 þar sem hún nam undir handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Sama vor varð hún hlutskörpust í einleikarakeppni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listaháskólans og hlaut í kjölfarið að leika fiðlukonsert eftir Glazunov með Sinfóníuhljómsveitinni.

Gunnhildur nam við Listaháskólann í Lahti í Finnlandi veturinn 2006–7, en hafði áður verið skiptinemi þar. Veturinn 2007–8 var hún við nám við Univerisity of Illinois hjá Sigurbirni Bernharðssyni og hélt þar áfram eftir að hafa leikið einn vetur með Sinfóníuhljóm- sveit Íslands og lauk meistaragráðu í fiðluleik síðastliðið vor. Í haust hóf Gunnhildur diploma nám við University of Michigan í Ann Arbor.

Gunnhildur var sigurvegari í Paul Rolland fiðlukeppninni í Illinois 2008 og hún hefur hlotið fjölda styrkja til náms og starfs, nú síðast úr Minningarsjóði Jean Pierre Jacquillat þann 30. júlí síðastliðinn.

Til baka á aðalsíðu