Bragi Bergþórsson er fæddur árið 1981 í Reykjavík. Hann hóf ungur tónlistarnám á fiðlu og píanó en söng í fyrsta skipti á sviði í barnakór í óperunni Othello í Íslensku Óperunni árið 1992. Hann sneri sér að söngnámi árið 2002 í Tónlistarskólanum í Reykjavík hjá Dr. Þórunni Guðmundsdóttur, en árið 2004 hélt hann til Lundúna þar sem hann stundaði nám síðan við Guildhall School of Music & Drama hjá Rudolf Piernay. Þaðan lauk hann mastersgráðu í söng og einnig námi við óperudeild skólans.

Bragi hefur komið fram í ýmsum óperuuppfærslum, ss. frumflutningi á Gretti, óperu Þorkels Sigurbjörnssonar, á Íslandi og í Kanada, hlutverk Fraccaso í La finta semplice (Mozart), Charles í The Long Christmas Dinner (Hindemith), Flamand í Capriccio (Strauss) og nú síðast í uppfærslu Íslensku Óperunnar á Ariadne auf Naxos (Strauss) sem Dansmeistarinn. Bragi hefur einnig sungið víða á tónleikum bæði hér heima og erlendis.


Til baka á aðalsíðu